Rhein-Neckar Löwen tryggði sér í kvöld bronsverðlaun í Evrópudeild karla í handbolta með 32:27-sigri á Wisla Plock í Manheim í Þýskalandi.
Ýmir Örn Gíslason skoraði eitt mark fyrir Löwen. Jerry Tollbring var í miklu stuði og gerði tíu mörk fyrir þýska liðið.
Ómar Ingi Magnússon og félagar í Magdeburg mæta Füchse Berlin í alþýskum úrslitaleik síðar í kvöld.