Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson er kominn inn í lið Barcelona sem mætir Álaborg í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta í Köln í dag klukkan 16.
Aron lék ekki með Barcelona í 31:26-sigrinum á Nantes í undanúrslitunum í gær en kemur inn í hópinn fyrir úrslitaleikinn.
Aron er fyrsti leikmaðurinn sem tekur tíu sinnum þátt í úrslitakeppni Meistaradeildarinnar en hún hefur verið haldin tólf sinnum í núverandi mynd.