Haukur glímir við ökklameiðsli

Haukur Þrastarson í leik með íslenska landsliðinu.
Haukur Þrastarson í leik með íslenska landsliðinu. Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson

Handknattleiksmaðurinn Haukur Þrastarson, leikmaður pólska liðsins Kielce og íslenska landsliðsins, er meiddur á ökkla og getur því ekki æft með landsliðinu sem er við æfingar hér á landi um þessar mundir.

Haukur sneri sig á ökkla og tognaði í leik Kielce gegn Porto í Meistaradeild Evrópu fyrir rúmum tveimur vikum.

Í samtali við Handbolta.is í dag sagðist hann hafa reynt að taka þátt á æfingu landsliðsins í gær en að þá hafi fljótlega komið í ljós að hann þurfi lengri tíma til þess að jafna sig.

Haukur sagðist því í staðinn vera í prógrammi með Jóni Birgi Guðmundssyni, sjúkraþjálfara á Selfossi sem vinnur einnig með landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert