Framlengir í Þýskalandi

Hákon Daði Styrmisson ásamt Viggó Kristjánssyni á æfingu A-landsliðsins í …
Hákon Daði Styrmisson ásamt Viggó Kristjánssyni á æfingu A-landsliðsins í vikunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eyjamaðurinn Hákon Daði Styrmisson hefur framlengt samning sinn við þýska handknattleiksfélagið Gummersbach eftir að hafa aðeins gengið til liðs við félagið síðastliðið sumar. Nýr samningur hans gildir til sumarsins 2024.

Hákon Daði hefur farið frábærlega af stað með Gummersbach eftir að hafa komið frá uppeldisfélagi sínu ÍBV, þar sem hann endaði sem markakóngur Olísdeildarinnar á síðasta tímabili.

Gummersbach er á toppi B-deildarinnar með átta sigra í fyrstu níu leikjunum.  Hefur Hákon Daði skorað 48 mörk í deildinni til þessa á tímabilinu.

Fyrri samningur hans var til tveggja ára, þ.e. til sumarsins 2023, en vegna góðrar frammistöðu Hákons Daða sagði Guðjón Valur Sigurðsson, aðalþjálfari Gummersbach, það mikilvægt að tryggja sér þjónustu Eyjamannsins enn lengur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert