FH vann öruggan 31:26-útisigur á Aftureldingu í Olísdeild karla í handbolta í kvöld. Eftir jafnræði framan af voru FH-ingar yfir allan seinni hálfleikinn og var forskotið ekki í hættu.
Afturelding var með 10:9 forskot þegar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik en eftir góðan kafla hjá FH voru hálfleikstölur 14:11, FH í vil. Afturelding var ekki líkleg til að jafna eftir það og sannfærandi sigur FH-inga raunin.
Egill Magnússon fór á kostum hjá FH og skoraði tólf mörk og Ásbjörn Friðriksson gerði 11, þar af fimm úr vítum. Phil Döhler varði 14 skot í markinu. Guðmundur Bragi Ástþórsson gerði tíu mörk fyrir Aftureldingu og Blær Hinriksson sex.
FH er í öðru sæti deildarinnar með 15 stig, einu stigi minna en topplið Hauka. Afturelding er í sjötta sæti með tíu stig.
Afturelding | 26:31 | FH | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Andri Sigmarsson Scheving (Afturelding) varði skot Frá Birgi sem var í dauðafæri. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |