Heimir Örn Árnason er kominn í þjálfarateymi karlaliðs KA í handknattleik og verður þar við hlið þeirra Jónatans Inga Magnússonar og Sverre Jakobsens út þetta keppnistímabili.
Heimir lék lengi með KA og er með mikla reynslu sem leikmaður og þjálfari, en hann hefur auk þess verið einn af fremstu handknattleiksdómurum landsins undanfarin ár.
KA hefur gengið illa að undanförnu en eftir tvo sigra í byrjun Íslandsmótsins hefur Akureyrarliðið tapað sjö af síðustu átta leikjum sínum í úrvalsdeildinni.