Danmörk og Japan unnu stórsigra á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik í kvöld en fyrsta umferð riðlakeppninnar stendur nú yfir á Spáni.
Danmörk fór létt með Túnis, 34:16, og Japan valtaði yfir lið Paragvæ, 40:17. Í spennuleik kvöldsins vann Ungverjaland sigur á Slóvakíu í grannaslat, 35:29, eftir að staðan var 16:16 í hálfleik.
Þar með er fyrstsu umferð lokið í fjórum riðlum af átta en fyrsta umferðin í hinum fjórum fer fram á morgun.
Í E-riðli eru Þýskaland og Ungverjaland með 2 stig en Slóvakía og Tékkland eru án stiga.
Í F-riðli eru Danmörk og Suður-Kórea með 2 stig en Kongó og Túnis eru án stiga.
Í G-riðli eru Japan og Brasilía með 2 stig en Króatía og Paragvæ eru án stiga.
Í H-riðli eru Spánn og Austurríki með 2 stig en Kína og Argentína eru án stiga.