Ólafur Andrés Guðmundsson og samherjar hans í franska liðinu Montpellier, misstu mikilvægt stig úr höndunum í kvöld þegar þeir heimsóttu Meshkov Brest til Hvíta-Rússlands í Meistaradeild Evrópu í handknattleik.
Montpellier var tveimur mörkum yfir þegar ein og hálf mínúta var eftir af leiknum en Mikita Vailupau náði að skora tvívegis undir lokin og tryggja Meshkov stig. Lokatölur urðu 31:31.
Ólafur náði ekki að skora í leiknum og átti eitt markskot en var rekinn tvisvar af velli. Lucas Pellas var í aðalhlutverki og skoraði 13 mörk.
Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Aalborg sem gerði góða ferð til Noregs og vann þar Elverum í sama riðli, 34:28. Orri Freyr Þorkelsson skoraði eitt mark fyrir Elverum.
Montpellier er efst í A-riðlinum með 16 stig eftir 10 leiki. Aalborg er komið í annað sætið með 14 stig eftir 10 leiki en Kiel, sem er með 13 stig, og Pick Szeged, sem er með 12 stig, hafa bæði spilað níu leiki. Elverum er síðan í fimmta sætinu með 8 stig.
Mikilvægt er að ná tveimur efstu sætum riðilsins því það gefur sæti í átta liða úrslitum. Liðin í þriðja til sjötta sæti fara hinsvegar í sextán liða úrslit.