Stórleikur hjá landsliðsmarkverðinum

Ágúst Elí Björgvinsson.
Ágúst Elí Björgvinsson. AFP

Ágúst Elí Björgvinsson landsliðsmarkvörður í handknattleik átti stórleik í kvöld þegar lið hans Kolding vann öruggan sigur á SönderjyskE, 29:23, í dönsku úrvalsdeildinni.

Ágúst varði 18 skot í leiknum og var með 49 prósent markvörslu en að auki skoraði hann eitt mark fyrir Kolding. Lið hans er nú í 11. sæti af 15 liðum í deildinni með 10 stig, aðeins tveimur stigum frá áttunda sætinu sem gefur keppnisrétt í úrslitakeppninni.

Sveinn Jóhannsson var næstmarkahæstur í liði SönderjyskE með fjögur mörk úr fimm skotum en eins og fram kom í dag hefur hann nú samið við Erlangen í Þýskalandi fyrir næsta tímabil. SönderjyskE er með 11 stig í níunda sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert