Danir unnu stórsigur á Ungverjum en Spánverjar lentu í miklu basli með Japani í tveimur síðustu leikjum kvöldsins á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik á Spáni í kvöld.
Danir unnu Ungverja 30:19 og eru á toppi milliriðils þrjú ásamt Þjóðverjum með 6 stig. Suður-Kórea er með 4 stig, Ungverjaland 2, Tékkland og Kongó eru án stiga.
Kristina Jörgensen skoraði 6 mörk fyrir Dani og Anne Mette Hansen 5. Hjá Ungverjum var Greta Kacsor atkvæðamest með 4 mörk.
Spánn vann Japan 28:26 og er með 6 stig á toppi milliriðils fjögur ásamt Japan. Króatía, Japan og Argentína eru með 2 stig hver þjóð en Austurríki er án stiga.