Brasilía og Þýskaland eru bæði með fullt hús stiga á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik á Spáni eftir sigra í fyrstu umferð milliriðlakeppninnar nú síðdegis.
Þýskaland vann Kongó mjög örugglega, 29:18, í milliriðli þrjú, eftir að staðan var 15:7 í hálfleik. Þjóðverjar eru komnir með sex stig eftir að hafa tekið fjögur stig með sér úr undanriðlinum. Kongó er án stiga.
Johanna Stockschlader var markahæst í þýska liðinu með 6 mörk en Fanta Diagouraga skoraði sjö mörk fyrir Kongó.
Brasilía sigraði Austurríki 38:31 í milliriðli fjögur eftir að staðan var 15:15 í hálfleik. Brasilísku konurnar eru með sex stig en þær tóku tvo sigra með sér úr undanriðlinum. Austurríki er án stiga.
Tamires Araujo skoraði sex mörk fyrir Brasilíu en þær Patricia Kovacs og Ines Ivancok skoruðu átta mörk hvor fyrir Austurríki.