Haukar fóru upp fyrir FH-inga

Heimir Óli Heimisson fer inn af línunni í leiknum gegn …
Heimir Óli Heimisson fer inn af línunni í leiknum gegn Fram í kvöld. Heimir skoraði sex mörk fyrir Hauka. mbl.is/Árni Sæberg

Haukar fóru á toppinn í Olís-deild karla í handknattleik í kvöld með sigri á Fram í Safamýrinni 33:32. 

Haukar fóru upp fyrir nágranna sína í FH og eru með 18 stig eftir tólf leiki. FH á hins vegar leik til góða en leikur Fram og Hauka var sá eini sem var á dagskrá í kvöld. Fram er í 8. sæti með 10 stig eftir ellefu leiki. 

Brynjólfur Snær Brynjólfsson átti stórleik hjá Haukum og skoraði 10 mörk í aðeins ellefu tilraunum. Haukar voru án Geirs Guðmundssonar og Adams Hauks Baumruk í kvöld. Markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson var heldur ekki með en Stefán Huldar Stefánsson varði 12 skot í marki Hauka. 

Vilhelm Poulsen var markahæstur hjá Fram enn eina ferðina og skoraði 7 mörk. Þrír markverðir komu við sögu hjá Fram og vörðu samtals ellefu skot. Flest skot varði hinn 42 ára gamli Magnús Erlendsson en hann varði 8 skot og var með 31% markvörslu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert