Mikil spenna var í fyrstu leikjum dagsins á HM kvenna í handknattleik á Spáni.
Rússland og Slóvenía gerðu jafntefli 26:26 í milliriðli I og er þetta fyrsta stigið sem sterkt lið Rússa tapar á mótinu.
Rússland er með 5 stig í milliriðlinum, Frakkar fjögur og Slóvenar sem slógu Íslendinga út í undankeppninni síðasta vetur eru með 3 stig.
Í milliriðli II vann Holland eins marks sigur á Rúmeníu 31:30 eftir spennuleik en Hollendingar eru núverandi heimsmeistarar.
Úrslitin eru væntanlega góð fyrir Noreg sem er í efsta sæti í riðlinum með 4 stig. Holland og Svíþjóð eru með 3 stig og Rúmenía er með 2 stig.