Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í handbolta, hefur valið sextán leikmenn sem mæta Tyrklandi á útivelli í undankeppni EM.
Liðin mætast í Tyrklandi miðvikudaginn 2. mars og á Ásvöllum fjórum dögum síðar. Ísland er með tvö stig eftir tvo leiki í riðlinum en Tyrkland er án stiga. Serbía er einnig með tvö stig og Svíþjóð á toppnum með fjögur stig.
Hópurinn sem mætir Tyrklandi ytra:
Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Ringköbing Håndbold (35/1)
Hafdís Renötudóttir, Fram (32/1)
Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, Kristianstad (27/7)
Berglind Þorsteinsdóttir, HK (8/5)
Díana Dögg Magnúsdóttir, BSV Sachsen Zwickau (30/31)
Elísa Elíasdóttir, ÍBV (2/0)
Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV (10/8)
Helena Rut Örvarsdóttir, Stjarnan (47/80)
Hildigunnur Einarsdóttir, Valur (86/96)
Lovísa Thompson, Valur (25/52)
Rut Jónsdóttir, KA/Þór (104/215)
Sandra Erlingsdóttir, EH Aalborg (8/27)
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (63/47)
Thea Imani Sturludóttir, Valur (50/77)
Unnur Ómarsdóttir, KA/Þór (34/32)
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (109/319)