Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði þrjú mörk og átti fimm stoðsendingar þegar Skövde þurfti að þola eins marks tap gegn Guif í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik, 33:32.
Skövde er í öðru sæti deildarinnar með 11 stig, einu stigi betur en Sävehof sem á leik til góða.
Guif leiddi í hálfleik 17:14 og komst mest fjórum mörkum yfir í seinni hálfleik. Skövde jafnaði metin í stöðunni 31:31 þegar um tvær mínútur lifðu leiks en nær komst liðið ekki.