Landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson fór á kostum fyrir Kadetten er liðið vann sætan 38:37-útisigur á Basel í efstu deild svissneska handboltans í kvöld.
Óðinn gerði sér lítið fyrir og skoraði 12 mörk í 13 tilraunum. Nýtti hann öll þrjú vítin sín í leiknum.
Kadetten er í öðru sæti deildarinnar með 32 stig, þremur stigum á eftir Kriens. Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.