Einn nýliði í íslenska landsliðshópnum

Ýmir Örn Gíslason og Elvar Örn Jónsson eru á sínum …
Ýmir Örn Gíslason og Elvar Örn Jónsson eru á sínum stað í hópnum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ágúst Þór Jóhannsson og Gunnar Magnússon, sem stýra íslenska karlalandsliðinu í handbolta tímabundið eftir að Guðmundur Guðmundsson hætti með liðið, hafa valið þá 16 leikmenn sem mæta Tékklandi í þriðja og fjórða leik í undankeppni EM 2024.

Liðin leika fyrri leik sinn í Tékklandi miðvikudaginn 8. mars kl. 19.15 og síðari leikinn í Laugardalshöll sunnudaginn 12. mars kl. 16.00.

Einn nýliði er í hópnum, en Stiven Tobar Valencia, sem hefur leikið gríðarlega vel með Val á leiktíðinni, gæti leikið sinn fyrsta landsleik. 

Íslenski hópurinn: 

Markverðir:

Björgvin Páll Gústavsson, Valur (252/21)

Viktor Gísli Hallgrímsson, HBC Nantes (43/1)

Aðrir leikmenn:

Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (79/80)

Aron Pálmarsson, Aalborg Håndbold (164/634)

Bjarki Már Elísson, Telekom Veszprém (99/340)

Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (31/51)

Elvar Ásgeirsson, Ribe Esbjerg (15/19)

Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (60/146)

Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (47/103)

Janus Daði Smárason, Kolstad Håndball (66/103)

Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (24/81)

Sigvaldi Björn Guðjónsson Kolstad Håndball (57/156)

Stiven Tobar Valencia, Valur (0/0)

Teitur Örn Einarsson, SG Flensburg-Handewitt (31/30)

Viggó Kristjánsson, SC Leipzig (41/97)

Ýmir Örn Gíslason, Die Rhein-Neckar Löwen (72/35)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert