Frammistaðan gífurleg vonbrigði

Gunnar Magnússon.
Gunnar Magnússon. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Gunnar Magnússon, annar þjálfara íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, sagði frammistöðuna í 17:22-tapinu fyrir Tékklandi í undankeppni EM 2024 í kvöld hafa verið gífurleg vonbrigði.

„Sóknarleikurinn varð okkur að falli í dag. Hann var alveg agalegur og í raun sama hvar á hann er litið. Það vantaði upp á agann. Við vissum að þeir myndu þétta vel á okkur.

Við ætluðum að fara meira út í breiddina og fá meira flot á boltann en við náum bara ekki að framkvæma það sem við ætluðum að gera. Þetta var bara rosalega stirt og mikið hnoð. Við vorum sjálfum okkur verstir í dag.

Frammistaðan, sérstaklega sóknarlega, er bara gífurleg vonbrigði. Að sama skapi var vörn og markvarsla mjög jákvæð í dag. Við náðum ekki að keyra eins og við ætluðum að gera, við náðum ekki að refsa, við erum líka óánægðir með það,“ sagði Gunnar í samtali við RÚV eftir leik.

Með sigrinum fór Tékkland upp í efsta sæti riðils 3 í undankeppninni. Gunnar taldi Ísland þó ekki vera búið að missa það úr höndum sér.

„Nei, nei. Það er seinni leikurinn eftir en auðvitað er svekkjandi að við hefðum getað náð þessu niður í þrjú mörk. Það hefði hjálpað til en þetta eru fimm mörk. Við förum í höllina á sunnudaginn og við getum snúið þessu við.

Það er svo margt sem við getum lagað á mjög stuttum tíma. Við þurfum núna að nýta tímann og laga þessa hluti því við getum miklu betur en þetta,“ sagði hann að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert