Handknattleiksmaðurinn Gauti Gunnarsson hefur skrifað undir samning við uppeldisfélag sitt ÍBV og gengur í raðir þess á ný frá KA að yfirstandandi tímabili loknu.
Gauti, sem er 21 árs hægri hornamaður, gekk til liðs við KA síðastliðið sumar frá ÍBV og verður stoppið því stutt á Akureyri. Hann hefur spilað alla 18 leiki KA í úrvalsdeildinni í vetur og er þriðji markahæsti leikmaður liðsins með 76 mörk.
Samningur Gauta við ÍBV er til tveggja ára.
„Gauta þekkja allir stuðningsmenn ÍBV en hann er uppalinn hjá félaginu. Gauti flutti sig um set síðastliðið sumar þegar hann gekk til liðs við KA á Akureyri. Þar hefur hann leikið í vetur og staðið sig með mikilli prýði.
Gauti hefur verið í yngri landsliðum Íslands undanfarin ár. Við erum afar ánægð með að fá Gauta aftur heim til ÍBV og hlökkum til samstarfsins,“ sagði í tilkynningu frá handknattleiksdeild ÍBV.