Hornamaðurinn Stiven Tobar Valencia hefur verið frábær í liði Vals í vetur, bæði í deildinni hér heima og í Evrópudeildinni. Þá var hann á dögunum valinn í íslenska landsliðið í fyrsta sinn.
Arnar Daði Arnarsson, þáttarstjórnandi hlaðvarpsins Handkastið og sérfræðingur í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport, segir í kvöld á Twitter-síðu sinni að Stiven sé á leið til portúgalska liðsins Benfica.
Benfica er í þriðja sæti portúgölsku deildarinnar, stigi á eftir toppliði Sporting en Porto er í öðru sæti með jafn mörg stig og Benfica. Þá er liðið í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar, líkt og Valur, en tapaði með 13 marka mun á heimavelli gegn Flensburg í kvöld.
Það verður fróðlegt að sjá hvar Stiven endar en Arnar Daði segir portúgölsku deildina hafa tekið miklum stakkaskiptum undanfarin ár.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Sérfræðingsins er Stiven Tobar Valencia á leið til Benfica í Portúgal. Áhugavert skref. Ég man ekki eftir íslenskum leikmanni í Portúgal en deildin hefur tekið stakkaskiptum síðustu ár. La Valsia akademían að skila N1 atvinnumanninum. Einar. pic.twitter.com/N6TM2qoyQ8
— Arnar Daði (@arnardadi) March 21, 2023