Reynslumikill hópur mætir Ungverjum í umspili

Þórey Rósa Stefánsdóttir er leikjahæsti leikmaður Íslands með 119 landsleiki.
Þórey Rósa Stefánsdóttir er leikjahæsti leikmaður Íslands með 119 landsleiki. mbl.is/Óttar Geirsson

Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik, hefur valið 20 leikmenn til æfinga fyrir umspilsleiki liðsins um laust sæti á HM 2023 gegn Ungverjalandi.

Liðin mætast á Ásvöllum 8. apríl næstkomandi og síðari leikurinn fer fram í Ungverjalandi 12. apríl. Það lið sem vinnur viðureignina með samanlagðri markatölu tryggir sér sæti á heimsmeistaramótinu sem haldið verður 30. nóvember til 17. desember á þessu ári í Danmörku, Svíþjóð og Noregi.

Frítt verður á leikinn á Ásvöllum í boði Icelandair.

Hópurinn er skipaður fjölda reynslumikilla leikmanna sem hafa samanlagt leikið yfir 800 A-landsleiki.

Leikmennirnir 20 eru eftirfarandi:

Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Ringkøbing Håndbold (41/1)
Hafdís Renötudóttir, Fram (42/2)
Margrét Einarsdóttir, Haukar (1/0)

Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, EH Aalborg (37/58)
Díana Dögg Magnúsdóttir, BSV Sachsen Zwickau (36/40)
Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (6/5)
Hildigunnur Einarsdóttir, Valur (92/103)
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, ÍBV (39/74)
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Skara HF (5/7)
Katla María Magnúsdóttir, Selfoss (1/0)
Katrín Tinna Jensdóttir, Volda (9/2)
Lilja Ágústsdóttir, Valur (6/1)
Perla Ruth Albertsdóttir, Fram (30/45)
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, KA/Þór (113/243)
Sandra Erlingsdóttir, Metzingen (18/75)
Steinunn Björnsdóttir, Fram (44/50)
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (73/55)
Thea Imani Sturludóttir, Valur (60/104)
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Valur (30/16)
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (119/348)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert