Árni Bragi Eyjólfsson, hægri skytta Aftureldingar, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir út næstu þrjú tímabil.
Árni er uppalinn í Aftureldingu en hefur einnig spilað erlendis og með KA í Olís deildinni. Hann gekk aftur til liðs við Aftureldingu frá KA árið 2021.
Hann hefur verið í algjöru lykilhlutverki hjá Aftureldingu undanfarin tvö tímabil en liðið varð á dögunum bikarmeistari í fyrsta sinn síðan árið 1999.
Í tilkynningu Aftureldingar, sem má sjá í heild sinni hér að neðan, segir m.a.:
„Árni Bragi hefur verið gríðarlega mikilvægur hlekkur í liði Aftureldingar og mun taka þátt í að leiða liðið okkar áfram inn í gríðarlega spennandi tíma sem framundan eru. “