Landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson er markahæstur allra í Evrópudeildinni í handbolta, með 110 mörk, nú þegar átta liða úrslitunum er lokið.
Hornamaðurinn hefur farið á kostum með svissneska liðinu Kadetten í keppninni, en liðið er úr leik eftir naumt tap fyrir Füchse Berlin í átta liða úrslitum.
Óðinn skoraði fimmtán mörk í 37:33-heimasigri í fyrri leiknum og sex í 24:30-tap á útivelli í seinni leiknum í gær.
Martim Costa hjá Sporting er í öðru sæti með 102 mörk og Bence Nagy hjá Férencváros með 99. Arnór Snær Óskarsson hjá Val er í 19. sæti með 65 mörk.