Uppselt á leikinn gegn Eistlandi

Teitur Örn Einarsson, Aron Pálmarsson, Óðinn Þór Ríkharðsson, Gísli Þorgeir …
Teitur Örn Einarsson, Aron Pálmarsson, Óðinn Þór Ríkharðsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Björgvin Páll Gústavsson og Bjarki Már Elísson syngja þjóðsönginn fyrir leik gegn Tékklandi í síðasta mánuði. mbl.is/Óttar Geirsson

Síðustu miðarnir á síðasta heimaleik Íslands í undankeppni EM 2024 í handknattleik seldust í dag. Þar með er uppselt á leikinn gegn Eistlandi, sem fer fram í Laugardalshöll næstkomandi sunnudag.

Um er að ræða lokaleik Íslands í riðli 3. Þar með hafa miðar á alla þrjá heimaleiki Íslands í undankeppninni selst upp.

Þremur dögum fyrr, á fimmtudag, fer Ísland í heimsókn til Tel Aviv í Ísrael og mætir þar heimamönnum í næstsíðasta leik undankeppninnar.

EM 2024 fer fram í Þýskalandi í janúar á næsta ári þar sem Ísland er langt komið með að tryggja sér sæti. Með sigrum í leikjunum tveimur er efsta sætið í riðli 3 Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert