Leikur sem við áttum ekki að tapa

Ásgeir Örn Hallgrímsson, þjálfari Hauka.
Ásgeir Örn Hallgrímsson, þjálfari Hauka. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Ásgeir Örn Hallgrímsson, þjálfari Hauka, var svekktur í samtali við mbl.is eftir fyrsta leik Aftureldingar og Hauka í undanúrslitum Olís deildar karla í handbolta í kvöld.

Leikið var í Mosfellsbænum og urðu lokatölur 28:24, Aftureldingu í vil og hafa þeir tekið forystu í einvíginu.

„Þetta var leikur sem við áttum ekki að tapa finnst mér. Við gefum vel eftir sóknarlega í seinni hálfleik og það verður okkur að falli í dag.“

Um miðbik seinni hálfleiks kom skelfingarkafli hjá Haukamönnum. Afturelding breytti stöðunni úr 14:17 í 21:17 og Haukar skoruðu ekki mark í tæpar tíu mínútur. Ásgeir var skiljanlega ekki ánægður með þann kafla.

„Þeir voru kannski beittari en við vorum sjálfum okkur verstir á þessum kafla.“

Þorsteinn Leó Gunnarsson, stórskytta Aftureldingar, skoraði aðeins eitt mark í dag. Ásgeir sagði að leikplanið hafi verið að reyna að taka hann úr jafnvægi.

„Við vitum það að Þorsteinn Leó er frábær skotmaður og við ætluðum að reyna að stoppa það.“

Næsti leikur er á mánudaginn og fréttaritari spurði Ásgeir hvort það yrði ekki slæmt að lenda 2:0 undir í einvíginu og hvort hans menn myndu ekki mæta brjálaðir til leiks. Svarið var stutt og einfalt.

„Nákvæmlega.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert