„Það er bara Mosó maður!“

Gunnar Malmquist Þórsson, leikmaður Aftureldingar, fagnar með stuðningsmönnum eftir leikinn …
Gunnar Malmquist Þórsson, leikmaður Aftureldingar, fagnar með stuðningsmönnum eftir leikinn í kvöld. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Gunnar Malmquist Þórsson, leikmaður Aftureldingar, sagðist í samtali við mbl.is vera hæstánægður með sigur sinna manna á Haukum í kvöld.

Leikurinn var sá fyrsti í undanúrslitaeinvígi liðanna í Olís deild karla í handbolta og urðu lokatölur 28:24, Aftureldingu í vil.

„Þetta var svolítið sveiflukennt. Mér sjálfum fannst við ekki mæta til leiks fyrr en það var korter eftir. Þá fellur lítið snjókorn sem kallast augnablik, við náum að grípa það og gera það að snjóbolta sem við náum að rúlla áfram og myndum snjóflóð, því fór sem fór.“

Afturelding náði flottum 7:0 kafla um miðbik seinni hálfleiks. Gunnar segir að þeir hafi náð upp stemningunni í vörninni og þá hafi þetta farið að ganga hjá þeim.

„Við sýndum alvöru Mosó-stemningu þarna á þessum kafla, fram að því höfðum við verið mjög stemningslitlir en þegar við mættum loksins þá small þetta. Auðvitað vorum við heppnir líka, við megum ekki gleyma því. Við þurfum að mæta 100% klárir í næsta leik því þeir eru ekki að fara að gefa neitt eftir.“

Þorsteinn Leó Gunnarsson, leikmaður Aftureldingar, var ekki líkur sjálfum sér í kvöld og skoraði aðeins eitt mark. Gunnar er ánægður með að aðrir stígi upp þegar einn á slakan leik.

„Við erum ekki með breiðasta hópinn í deildinni en við erum með hörkuleikmenn sem eru í góðu standi og þeir þurfa að skila sínu, sérstaklega þegar einn af okkur hittir ekki á leikinn sinn.“

Næsti leikur í einvíginu er á Ásvöllum á mánudaginn næsta og segir Gunnar að Mosfellingar muni mæta brjálaðir í þann leik.

„Þetta er skemmtilegasti tími ársins. Þetta er ástæðan fyrir því að við mætum klukkan 5 á morgnanna alla virka daga og um helgar, við þurfum að njóta þess að vera hérna. Þetta er úrslitakeppnin og ég get lofað því að við mætum klárir á mánudaginn.“

Aðspurður hvað honum fannst um stuðninginn í kvöld, sagði Gunnar:

„Þeir eru geggjaðir. Það er bara Mosó maður! Ég vil samt sjá aðeins meira Mosó í næsta leik. Ég skal lofa því að ég verð aðeins meira peppaður ef þeir verða aðeins meira Mosó.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert