Ánægður með margt í okkar leik

Ágúst fær tiltal frá Þorleifi Árna Björnssyni dómara leiksins í …
Ágúst fær tiltal frá Þorleifi Árna Björnssyni dómara leiksins í dag. mbl.is/Óttar Geirsson

Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Vals í handbolta, sagðist í samtali við mbl.is vera hæstánægður með sigur liðsins á Stjörnunni í dag.

Leikurinn var sá fjórði í undanúrslitaeinvígi liðanna í Íslandsmóti kvenna og tryggði Valur sér sæti í úrslitum með sigrinum, þær unnu einvígið 3:1.

„Ég var mjög ánægður með margt í okkar leik í dag. Við fengum framlag frá mjög mörgum leikmönnum og varnarleikurinn var betri en hann hefur verið undanfarið. Með góðum varnarleik þá fáum við góða markvörslu og náðum að keyra betur á þær. Það er það sem við ætluðum okkur að bæta frá síðustu leikjum, að ná að keyra betur á Stjörnuliðið.“

Sara Sif Helgadóttir, markvörður Vals, var frábær í markinu í kvöld en hún varði 15 skot og skoraði m.a. eitt mark. Ágúst var ánægður með Söru.

„Við erum með tvo frábæra markverði. Sara datt út og meiddist en hefur komið mjög sterk til baka. Varnarleikurinn var betri í dag en í öðrum leikjum, hafsentarnir mjög góðir og hreyfanlegir þannig að þetta helst allt í hendur.“

Þórey Anna Ásgeirsdóttir skoraði 10 mörk í dag og þar af voru 5 af vítalínunni. Hún klikkaði ekki af víti og spurði fréttaritari Ágúst hvort hann hafi einhverntíman séð hana klikka á víti á æfingum?

„Ég hef ekki séð mörg klikk frá henni, hvorki á æfingum né í leikjum. Þórey er búin að spila mjög vel í vetur, eins og allt liðið hjá okkur. Við vorum hársbreidd frá því að verða deildarmeistarar og bikarmeistarar en nú erum við komnar í úrslit Íslandsmótsins fimmta árið í röð. Við þurfum að nota tímann vel, hvíla okkur og sjá til þess að við verðum í okkar besta standi þegar úrslitaeinvígið byrjar.“

Aðspurður hvort það væri einhver óskamótherji í úrslitum sagði Ágúst að bæði Haukar og ÍBV væru með hörkulið.

„ÍBV er búið að vera mjög sannfærandi í vetur og eru hrikalega öflugar. Haukaliðið hefur verið að spila frábæran handbolta núna undanfarið þannig að það er enginn óskamótherji, við tökum því sem höndum ber og mætum í okkar besta standi þegar úrslitaeinvígið byrjar, sama hverjum við mætum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert