Ég er gríðarlega þakklátur félaginu

Hrannar Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, svekktur á hliðarlínunni í dag.
Hrannar Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, svekktur á hliðarlínunni í dag. mbl.is/Óttar Geirsson

Hrannar Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var svekktur í viðtali við mbl.is í dag eftir ósigur Stjörnunnar gegn Val í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta.

Eftir tapið er Stjarnan komin í sumarfrí en Valskonur fara í úrslitaeinvígið þar sem annaðhvort Haukar eða ÍBV bíða.

„Mjög svekkjandi tap í dag, þær voru betri en við á öllum vígstöðvum í dag og við áttum fá svör við þeirra leik. Varnarleikurinn var fínn en þá var sóknarleikurinn ekki nógu góður, við reyndum að brjóta sóknarleikinn upp í seinni hálfleik með því að fara í 7 á 6, skorum einhver mörk en fáum strax mörk í bakið í staðin. Þetta var bara erfitt í dag.“

Eins og áður segir er tímabilinu hjá Stjörnunni lokið og var þetta seinasti leikur Hrannars við stjórnvölin. Hrannar segist vera þakklátur félaginu.

„Ég er gríðarlega þakklátur fyrir að hafa fengið að starfa fyrir þennan klúbb og með þessar stelpur. Þetta eru geggjaðar stelpur sem leggja ótrúlega mikið á sig til að ná árangri. Þó að sérfræðingar hafa afskrifað okkur trekk í trekk þá sýna þessar stelpur hvað er í þær spunnið og ná flottum árangri.“

Aðspurður hvað taki við hjá Hrannari persónulega segir hann að það sé óráðið.

„Ég hef hug á að halda áfram í þjálfun og skoða allt. Ég hef ekki haft tíma í að pæla í því enþá, hef bara verið að einbeita mér að því að klára tímabilið með Stjörnunni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert