Haukar knúðu fram oddaleik gegn ÍBV

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir sækir að marki Hauka.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir sækir að marki Hauka. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Haukar tóku á móti ÍBV í fjórða leik undanúr­slita Íslandsmóts kvenna í hand­bolta í dag. Leikið var á Ásvöllum og urðu loka­töl­ur 29:26 eftir framlengdan æsispennandi leik.

Vinna þarf þrjá leiki í ein­víg­inu til að kom­ast í úr­slit og fyrir leikinn í dag var staðan í einvíginu 2:1 fyrir ÍBV. Það verður því hreinn oddaleikur í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn kl 18:00.

Það voru leikmenn Hauka sem skoruðu fyrsta mark leiksins og höfðu  frumkvæðið í fyrrihálfleik. Eyjakonur náðu að jafna tvisvar sinnum í leiknum í stöðunum 7:7 og 10:10. Eyjakonur komust síðan yfir í fyrri hálfleik í stöðunni 10:11.

Þá tóku haukakonur aftur við sér og skoruðu þrjú mörk í röð og gengu til hálfleiks í stöðunni 13:11. Það sem stóð upp úr í fyrri hálfleik var fyrst og fremst varnarleikur beggja liða og fín markvarsla Margrétar í liði Hauka sem varði 6 skot í fyrri hálfleik.

Síðari hálfleikur var svakalegur. Liðin skiptust á að jafna og ná yfirhöndinni. Bæði lið lentu í miklum vandræðum með sóknarleik sinn og á tímabili tóku Haukakonur varla sókn án þess að hönd dómarans kæmi upp. Haukar skiptu um markvörð þegar um 9 mínútur voru búnar af síðari hálfleik og var þá staðan 16:15 fyrir Hauka.

Það reyndist heldur betur gæfuskipting fyrir Hauka því Elísa Helga Sigurðardóttir varði 8 skot og þar af eitt víti það sem eftir lifði leiks. Þegar um 20 sekúndur voru eftir fengu ÍBV lokasókn til að ná fram sigri. Hún rann út í sandinn og því þurfti að framlengja eftir æsispennandi leik sem endaði 22:22 eftir 60 mínútur.

Í framlengingunni mátti berlega sjá stress á leikmönnum beggja liða sem skiptust á að gera mistök. Haukakonur hristu það hratt af sér, skoruðu hvert markið á fætur öðru og komust í 25:22. Á sama tíma lokaði Elísa Helga Sigurðardóttir markinu og var sannkallaður Haukur í horni haukakvenna.

Atkvæðamestar í liði Hakua voru þær Elín Klara Þorkelsdóttir og Sara Marie Odden. Í liði ÍBV var Sunna Jónsdóttir með 8 mörk. Marta Wawrzynkowska markvörður ÍBV varði 14 skot og þar af eitt vítaskot. Það verður því hreinn úrslitaleikur milli liðanna um það hver leikur til úrslita gegn annað hvort Stjörnunni eða Val.

Haukar 29:26 ÍBV opna loka
70. mín. Leik lokið Haukakonur knýja fram hreinan oddaleik í Vestmannaeyjum eftir framlengdan leik hér á Ásvöllum í dag.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert