Íslendingarnir fóru hamförum í jafntefli

Aron Pálmarsson skoraði sjö mörk í dag.
Aron Pálmarsson skoraði sjö mörk í dag. mbl.is/Óttar Geirsson

Íslendingarnir fóru mikinn í jafntefli Aalborg og Ribe-Esbjerg, 36:36, á heimavelli fyrrnefnda liðsins í riðli 1 í úr­slita­keppni danska hand­bolt­ans í dag. 

Aron Pálmarsson skoraði sjö mörk og var markahæstur ásamt tveimur öðrum í liði Álaborgar en Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins. 

Elvar Ásgeirsson skoraði fimm mörk fyrir Ribe-Esbjerg og bætti Arnar Birkir Hálfdánsson við marki. Markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson varði tíu skot. 

Aalborg er með átta stig í öðru sæti riðilsins en en Ribe-Es­bjerg í þriðja sæti af fjór­um liðum með fjögur. Tvö efstu liðin fara í undanúr­slit um danska meist­ara­titil­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert