Skoraði níu mörk en tapaði úrslitaleiknum

Óðinn Þór Ríkharðsson hefur leikið gríðarlega vel með Kadetten á …
Óðinn Þór Ríkharðsson hefur leikið gríðarlega vel með Kadetten á leiktíðinni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Óðinn Þór Ríkarðsson og félagar í Kadetten máttu þola tap, 30:32, fyrir Kriens í úrslitaleik svissneska bikarsins í handknattleik í dag. 

Þrátt fyrir tapið skoraði Óðinn níu mörk fyrir Kadetten-liðið sem dugði þó ekki. 

Þetta er fyrsti bikarsigur Kriens í sögu félagsins en liðið er í efsta sæti svissnesku deildarinnar með 47 stig, fimm meira en Kadetten með 42. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert