Stjarnan tók á móti Val í þriðja leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Íslandsmóts kvenna í handbolta í dag. Leikið var í Garðabænum og urðu lokatölur 27:20 gestunum í vil.
Vinna þurfti þrjá leiki í einvíginu til að komast áfram í úrslit og er ljóst eftir þennan leik að Valur vinnur einvígið 3:1 og mun spila í úrslitum Íslandsmótsins á móti annað hvort ÍBV eða Haukum sem munu mætast í oddaleik í sínu einvígi á þriðjudaginn næsta.
Það mátti alveg sjá það á leikmönnum beggja liða að mikið væri undir í leik dagsins en bæði lið gerðu mörg mistök til að byrja með og voru með aragrúa af töpuðum boltum.
Valskonur tóku frumkvæðið snemma og náðu forystu í byrjun leiks þegar Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði fyrsta mark leiksins. Þá forystu létu Valskonur aldrei frá sér í fyrri hálfleik og leiddu að honum loknum 9:12.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir var frábær í liði Vals í fyrri hálfleik og skoraði hún 5 af 12 mörkum liðsins. Þá var Sara Sif Helgadóttir góð í markinu en hún varði 6 skot í fyrri hálfleik.
Seinni hálfleikurinn spilaðist svipað og sá fyrri og voru Valskonur alltaf á undan.
Stjarnan reyndi að breyta um bæði sóknar- og varnarafbrigði en ekkert virkaði og virtust Valskonur eiga svör við öllum aðgerðum Stjörnukvenna.
Svo fór að lokum að Valur vann sannfærandi sjö marka sigur, 27:20 og er á leið í úrslitaeinvígið.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir var frábær í sókn gestanna en hún skoraði 10 mörk, þar af 5 úr vítum. Sara Sif Helgadóttir átti frábæran leik í marki Vals en hún varði 15 skot.
Hjá Stjörnunni var Helena Rut Örvarsdóttir atkvæðamest með 8 mörk og Lena Rut Valdimarsdóttir skoraði 6. Darija Zecevic varði 11 skot í marki heimakvenna.