Gummersbach vann í dag 32:31-heimasigur á Erlangen í þýsku 1. deildinni í handbolta.
Elliði Snær Viðarsson átti góðan leik fyrir Gummersbach og skoraði sex mörk. Hákon Daði Styrmisson komst ekki á blað. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar Gummersbach. Ólafur Stefánsson er aðstoðarþjálfari Erlangen.
Magdeburg vann 23:21-heimasigur á Bergischer í Íslendingaslag. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg, en Ómar Ingi Magnússon lék ekki með liðinu vegna meiðsla. Arnór Þór Gunnarsson fékk rautt spjald hjá Bergischer snemma í seinni hálfleik og komst ekki á blað.
Sveinn Jóhannsson gerði fjögur mörk fyrir Minden í 31:31-jafntefli á útivelli gegn Leipzig. Viggó Kristjánsson lék ekki með Leipzig, en Rúnar Sigtryggsson þjálfar liðið.
Þá vann topplið Kiel sannfærandi 33:23-heimasigur á Hannover-Burgdorf. Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-liðsins.