Ótrúleg endurkoma Eyjamanna

Rúnar Kárason fagnar vel í leikslok.
Rúnar Kárason fagnar vel í leikslok. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

ÍBV er komið í 2:0 í einvígi sínu gegn FH í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta eftir ótrúlegan 31:29-endurkomusigur í öðrum leik í Vestmannaeyjum í kvöld. Úrslitin réðust í framlengingu, eftir að FH hafði mest verið átta mörkum yfir.

Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og var staðan 3:3 eftir sjö mínútna leik. Þá hrukku FH-ingar í gang, skoruðu fimm mörk í röð og breyttu stöðunni í 8:3.

Var FH með undirtökin út fyrri hálfleikinn eftir það og var staðan í leikhléi 16:11. Phil Döhler lék gríðarlega vel fyrir FH í markinu og varði tíu skot. Var hann og vörnin fyrir framan hann stór ástæða þess að FH var með góða stöðu í hálfleik.

FH hélt undirtökunum fyrri hluta seinni hálfleiks og var staðan 22:15, þegar seinni hálfleikur var tæplega hálfnaður.

ÍBV neitaði hins vegar að gefast upp og Petar Jokanovic lokaði marki Eyjamanna með stórkostlegri frammistöðu. Eyjamenn gengu á sama tíma á lagið í sókninni og tókst með glæsilegum lokakafla að jafna í 27:27, sem urðu lokatölur.

Því varð að framlengja og var meðbyrinn þá með ÍBV, sem fagnaði dísætum tveggja marka sigri og 2:0-forskoti í einvíginu.

Rúnar Kárason skoraði níu mörk fyrir ÍBV og Jokanovic varði 22 skot, þar af tvö víti. Ásbjörn Friðriksson skoraði ellefu fyrir FH.

ÍBV 31:29 FH opna loka
70. mín. FH tapar boltanum Elmar verst vel og stelur boltanum. 40 sekúndur eftir og Eyjamenn í kjörstöðu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert