Úrslitin í einvígi ÍR og Selfoss um sæti í efstu deild kvenna í handbolta ráðast í oddaleik. Það varð ljóst eftir 31:22-stórsigur Selfyssinga á útivelli í fjórða leik liðanna í kvöld.
ÍR vann tvo fyrstu leikina, en Selfoss hefur nú svarað með tveimur stórsigrum í röð.
Arna Kristín Einarsdóttir skoraði níu mörk fyrir Selfoss og Roberta Stropé gerði fimm. Matthildur Lilja Jónsdóttir og Karen Tinna Demian gerðu fimm mörk hvor fyrir ÍR.
Oddaleikurinn fer fram á Selfossi á miðvikudaginn klukkan 19:30.