Víkingur upp í efstu deild eftir ótrúlega dramatík

Víkingar fagna vel í leikslok.
Víkingar fagna vel í leikslok. mbl.is/Óttar Geirsson

Víkingur tryggði sér í dag sæti í efstu deild karla í handbolta eftir ótrúlegan 23:22-heimasigur á Fjölni í oddaleik liðanna í úrslitaeinvígi 1. deildarinnar.

Halldór Ingi Jónasson skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndunum, þegar hann skaut yfir allan völlinn og í autt mark Fjölnis.

Fjölnir fékk tækifæri til að skora sigurmarkið í síðustu sókn sinni í leiknum, en hún fór forgörðum og Halldór refsaði með sigurmarkinu.

Gunnar Valdimar Johnsen skoraði sjö mörk fyrir Víking og þeir Jóhann Reynir Gunnlaugsson og Brynjar Jökull Guðmundsson fjögur hvor. Viktor Berg Grétarsson skoraði fimm mörk fyrir Fjölni, sem leikur áfram í 1. deild á næstu leiktíð.

Jóhann Reynir Gunnlaugsson fagnar fyrir framan dómarann Svavar Ólaf Pétursson.
Jóhann Reynir Gunnlaugsson fagnar fyrir framan dómarann Svavar Ólaf Pétursson. mbl.is/Óttar Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert