Haukar tóku á móti Aftureldingu í öðrum leik undanúrslita Íslandsmóts karla í handbolta í kvöld. Leikið var á Ásvöllum og urðu lokatölur 29:28 fyrir Hauka. Staðan í einvíginu er því 1:1.
Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitaleikina gegn annað hvort FH eða ÍBV. Liðin mætast að nýju í Mosfellsbæ á fimmtudagskvöld.
Jafnræði var með liðunum fyrstu mínútur fyrri hálfleiks eða allt þar til í stöðunni 7:7 þegar Haukar tapa boltanum og Afturelding kemst yfir í 7:8. Þá tóku Mosfellingar völdin á vellinum og lokuðu á allar aðgerðir Hauka í sókninni. Sömuleiðis áttu leikmenn Aftureldingar mjög auðvelt með að opna vörn Haukamanna.
Munurinn á liðunum í fyrri hálfleik var ekki síður markvarslan þar sem Matas Pranckevicus varði eitt skot fyrir Hauka og Jovan Kukobat fimm skot fyrir Aftureldingu. Staðan í hálfleik var verðskulduð forysta Aftureldingar, 16:14.
Haukar byrjuðu með boltann í síðari hálfleik og virtist leikurinn ætla að þróast með sama hætti og fyrri hálfleikur endaði þar sem Haukar skoruðu eitt mark á fyrstu fimm mínútum hálfleiksins.
Í stöðunni 15:19 skoruðu Haukar hins vegar sjö mörk í röð og komust í 22:19. Þeirri forystu héldu þeir þangað til um fjórar mínútur voru eftir af leiknum en þá jafnaði Afturelding í 26:26 og komst svo tveimur mörkum yfir, 26:28.
Þá tóku Haukamenn leikhlé. Það hefur skilað sér því Haukar jöfnuðu leikinn í 28:28. Þegar um 20 sekúndur voru eftir héldu leikmenn Aftureldingar í sókn. Þeir töpuðu boltanum og náðu Haukamenn að bruna upp í hraðaupphlaup og Brynjólfur Snær Brynjólfsson skoraði sigurmarkið á lokasekúndu leiksins.
Það má því búast við æsispennandi leik í Mosfellsbæ á fimmtudag.