Handknattleikskonan Berta Rut Harðardóttir hefur skrifað undir samning við sænska félagið Kristianstad um að leika með liðinu á komandi tímabili.
Berta Rut, sem er 22 ára örvhent skytta og hornamaður, kemur frá danska B-deildarliðinu Holstebro, þar sem hún lék á nýafstöðnu tímabili eftir að hafa komið frá Haukum síðastliðið sumar.
„Ég hlakka mikið til að koma til Kristianstad og reyna fyrir mér í sænsku deildinni. Ég held að Kristianstad sé rétti staðurinn fyrir mig til að halda áfram þróun minni, jafnt innan vallar sem utan.
Þegar ég heimsótti félagið fékk ég góða tilfinningu fyrir bæði liðinu og bænum þannig að ég hlakka til að hefjast handa.
Ég hlakka til að hitta ykkur öll í keppnishöllinni, þangað til mun ég æfa mig í sænsku,“ sagði Berta Rut í samtali við heimasíðu Kristianstad.
Holstebro hafnaði í þriðja sæti dönsku B-deildarinnar á tímabilinu og féll út í umspili um úrvalsdeildarsæti og leikur því áfram í deildinni á því næsta.
Kristianstad leikur í sænsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili eftir að hafa naumlega bjargað sér frá falli úr henni með 3:2-sigri á B-deildarliði Boden í oddaleik í umspili um sætið í deildinni.