Thorsten Fries, markvörður danska handknattleiksfélagsins Fredericia, segir að Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari liðsins, fái leikmenn liðsins til þess að trúa því að þeir geti unnið hvaða lið sem er í heiminum.
Guðmundur Þórður tók við þjálfun danska liðsins síðasta sumar en liðið er í vænlegri stöðu í 2. sæti 2. riðils úrslitakeppninnar þegar ein umferð er eftir af riðlakeppninni.
Fredericia endaði í 7. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar eftir erfiða byrjun á tímabilinu og áttu fæstir von á því í vetur að liðið ætti raunhæfa möguleika á því að leika til undanúrslita um danska meistaratitilinn.
„Við trúum því að við getum unnið hvaða mótherja sem er,“ sagði Fries í samtali við Fredericia Dagblad.
„Guðmundur hefur mikinn sigurvilja, sem smitar út frá sér, og hann fær okkur til þess að trúa. Við vorum ansi ánægðir með okkur þegar við mættum á fyrstu æfinguna okkar eftir að við höfum tryggt sæti okkar í úrslitakeppninni.
Guðmundur var hins vegar fljótur að ná okkur niður á jörðinn og talaði um að núna værum við á leið í undanúrslitin,“ bætti Fries við.