ÍBV tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum Íslandsmóts kvenna í handbolta með 27:23-sigri á Haukum í framlengdum oddaleik liðanna í Vestmannaeyjum. ÍBV vann einvígið 3:2 og mætir Val í úrslitum.
Haukakonur voru með forskotið stóran hluta fyrri hálfleiks og var staðan 7:5 þegar hann var hálfnaður. ÍBV jafnaði hins vegar í 8:8 og var að lokum einu marki yfir í hálfleik 12:11.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir var markahæst hjá Haukum í fyrri hálfleik með fimm mörk og hún átti auk þess margar góðar línusendingar, en línumaðurinn Elísa Elíasdóttir kom þar á eftir með fjögur. Marta Wawrzynkowska varði 12 skot í markinu, þar af tvö víti.
Á meðan ÍBV treysti mikið á einstaklingsframtök hjá Hrafnhildi, voru fleiri að standa sig vel hjá Haukum. Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði þrjú mörk og var góð að vanda. Sara Odden átti sína spretti og Ragnheiður Sveinsdóttir var sérstaklega góð í vörninni.
Seinni hálfleikur spilaðist svipað og sá fyrri og var jafnt á nánast öllum tölum og mikil spenna. Sara Odden jafnaði fyrir Hauka í 22:22 þegar rúm mínúta var eftir og fengu bæði lið tækifæri til að skora sigurmarkið eftir það, en án árangurs. Réðust úrslitin því í framlengingu.
Þar var ÍBV mikið sterkari aðilinn, því Haukar skoruðu aðeins eitt mark á tíu mínútum í framlengingunni. ÍBV gerði á sama tíma fimm mörk og vann því fjögurra marka sigur, 27:23.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skoraði níu mörk fyrir ÍBV og þær Harpa Valey Gylfadóttir og Elísa Elíasdóttir fimm hvor. Marta Wawrzynkowska varði 21 skot í marki ÍBV, þar af þrjú víti.
Ena Car, Elín Klara Þorkelsdóttir, Sonja Lind Sigsteinsdóttir og Sara Odden skoruðu fjögur hver fyrir Hauka. Margrét Einarsdóttir varði 14 skot í markinu.