Nýliðarnir styrkja sig

Hildur Lilja Jónsdóttir ásamt Guðmundi Helga Pálssyni, þjálfara Aftureldingar.
Hildur Lilja Jónsdóttir ásamt Guðmundi Helga Pálssyni, þjálfara Aftureldingar. Ljósmynd/Afturelding

Hildur Lilja Jónsdóttir hefur komist að samkomulagi við handknattleiksdeild Aftureldingar um að leika með liðinu næstu tvö árin.

Hildur Lilja er 19 ára gömul og getur bæði leikið sem hægri hornamaður og skytta, en hún er örvhent.

Hún kemur frá KA/Þór, þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö tímabil. Skoraði Hildur Lilja til að mynda 51 mark á nýafstöðnu tímabili og var valin í U19-ára landslið Íslands.

Afturelding tryggði sér sæti í úrvalsdeild að nýju eftir að hafa staðið uppi sem sigurvegari í næstefstu deild á tímabilinu.

Hildur Lilja er annar leikmaðurinn sem nýliðarnir fá til liðs við sig en markvörðurinn öflugi, Saga Sif Gísladóttir, samdi við félagið á dögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert