Nýr þjálfari kynntur í vikunni?

Snorri Steinn Guðjónsson verður ekki áfram á Hlíðarenda.
Snorri Steinn Guðjónsson verður ekki áfram á Hlíðarenda. mbl.is/Kristinn Magnússon

Snorri Steinn Guðjónsson verður að öllum líkindum kynntur sem næsti þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handknattleik í vikunni.

Þetta herma heimildir mbl.is og Morgunblaðsins.

Snorri Steinn, sem er 41 árs gamall, hefur verið þjálfari karlaliðs Vals frá árinu 2017 og undir hans stjórn urðu Valsmenn tvívegis Íslandsmeistarar og tvívegis bikarmeistarar. Þá fór liðið alla leið í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar í ár þar sem liðið féll úr leik eftir tap gegn þýska stórliðinu Göppingen.

Í síðustu viku tilkynnti Snorri Steinn leikmönnum Vals að hann yrði ekki áfram með liðið á næstu leiktíð en Ágúst Jóhannsson þykir líklegastur til þess að taka við karlaliðinu eins og sakir standa. Ágúst hefur stýrt kvennaliði Vals frá árinu 2017.

77 daga leit HSÍ

Í dag eru 77 dagar liðnar síðan HSÍ tilkynnti að Guðmundur Þórður Guðmundsson væri hættur störfum sem þjálfari íslenska landsliðsins eftir 1.842 daga í starfi. Ágúst Jóhannsson og Gunnar Magnússon aðstoðarþjálfarar Guðmundar stýrðu liðinu út undankeppni EM 2024 sem lauk í apríl.

Eftir að Guðmundur Þórður lét af störfum tilkynnti Guðmundur B. Ólafsson formaður HSÍ að sambandið ætlaði að gefa sér góðan tíma í að ráða næsta landsliðsþjálfara eftir vonbrigðin á HM 2023 í Svíþjóð og Póllandi þar sem íslenska liðið hafnaði í 12. sæti.

Margir þjálfarar voru nefndir til sögunnar sem hugsanlegir landsliðsþjálfarar og voru þeir flestir íslenskir. HSÍ ræddi óformlega við þá Dag Sigurðsson, Michael Apelgren og Snorra Stein Guðjónsson en eftir þær viðræður virtist lítið gerast í þjálfaramálum karlalandsliðsins.

Umfjöllunina má lesa í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert