Dagur í norsku úrvalsdeildina

Dagur Gautason í leik með KA á nýafstöðnu tímabili.
Dagur Gautason í leik með KA á nýafstöðnu tímabili. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Handknattleiksmaðurinn Dagur Gautason, vinstri hornamaður KA, er á leið til norska úrvalsdeildarfélagsins Arendal, þar sem hann mun skrifa undir tveggja ára samning.

Akureyri.net greinir frá.

Hjá Arendal mun Dagur, sem er uppalinn hjá KA, hitta fyrir annan Akureyring, Þórsarann Hafþór Má Vignisson.

Hér á landi hefur Dagur einnig leikið með Stjörnunni. Hafþór Már var sömuleiðis um skeið á mála hjá Stjörnunni og lék með Empor Rostock í þýsku B-deildinni fyrri hluta nýafstaðins tímabils áður en hann skipti yfir til Arendal í febrúar síðastliðnum.

Dagur, sem er 23 ára, lék vel með KA á nýafstöðnu tímabili þó liðið hafi verið í harðri fallbaráttu stærstan hluta þess. Skoraði hann fimm mörk að meðaltali í leik og var með 82 prósenta skotnýtingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert