Eyjamenn tryggðu sig í úrslit

Arnór Viðarsson sækir að Hafnfirðingum í Kaplakrika í kvöld.
Arnór Viðarsson sækir að Hafnfirðingum í Kaplakrika í kvöld. mbl.is/Hákon Pálsson

FH tók á móti ÍBV í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta í kvöld. Leikið var í Kaplakrika og vann ÍBV eftir framlengdan leik, 31:29.

Með sigrinum tryggðu Eyjamenn sér sæti í úrslitum Íslandsmótsins í handbolta en FH liðið er komið í sumarfrí, þrátt fyrir mikla baráttu.

Leikurinn var jafn til að byrja með og skiptust liðin á að hafa forystu. Segja má að fyrri hálfleikurinn hafi verið leikur línumannanna því Jón Bjarni Ólafsson var markahæstur heimamanna með fjögur mörk og Kári Kristján Kristjánsson var atkvæðamestur hjá gestunum með fimm mörk í hálfleik.

Það var mikil harka sem einkenndi leikinn í kvöld og gaf hvorugt liðið tommu eftir. Jóhannes Berg Andrason, leikmaður FH, þurfti að sitja mestallan fyrri hálfleikinn á bekknum því hann fékk sína aðra brottvísun á 17. mínútu og vildi Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, skiljanlega ekki taka þá áhættu að hann fengi þá þriðju og þar með útilokun.

Það var hart barist í Kaplakrika í kvöld.
Það var hart barist í Kaplakrika í kvöld. Ljósmynd/Hákon Pálsson

Gestirnir komust mest þremur mörkum yfir undir lok fyrri hálfleiks, 12:15, en heimamenn náðu að minnka forskot þeirra niður í tvö mörk áður en flautað var til hálfleiks. Staðan var þá 13:15 ÍBV í vil.

FH-ingar mættu vel gíraðir út í seinni hálfleik og náðu að jafna leikinn á 36. mínútu þegar Jón Bjarni skoraði sitt fimmta mark í leiknum. Staðan var þá 17:17.

Þá kviknaði aftur á gestunum og komust þeir í tveggja marka forystu um miðbik seinni hálfleiks, 22:24. Eyjamenn héldu frumkvæðinu þangað til á síðustu mínútu venjulegs leiktíma.

Þá fékk FH vítakast sem Ásbjörn Friðriksson tók. Hann hafði verið ískaldur á línunni allan leikinn og hafði skorað úr öllum fimm vítaköstum sínum í leiknum. Í þetta skiptið varði Petar Jokanovic frá honum en Ásbjörn henti sér á frákastið og fékk aukakast þegar 20 sekúndur voru eftir af leiknum.

FH stillti upp í kerfi fyrir Jóhannes Berg Andrason sem skoraði þegar tvær sekúndur voru eftir af leiknum og jafnaði leikinn, 27:27 og framlenging var staðreynd.

Það var ljóst á spilamennsku manna í framlengingunni að spennan var mikil og að mikið væri undir því aðeins voru skoruð tvö mörk í fyrri hluta framlengingarinnar og liðin töpuðu boltanum trekk í trekk.

Sigursteinn Arndal, þjálfari ÍBV, fékk tveggja mínútna brottvísun á bekk FH-inga undir lok fyrri framlengingar fyrir að hoppa upp. Fannst dómurum leiksins það ekki vera honum sæmandi og gáfu honum brottvísun. Sú brottvísun reyndist dýr þar sem FH spilaði stóran hluta seinni hluta framlengingar manni færri og Eyjamenn gengu á lagið.

Það voru Eyjamenn sem reyndust sterkari í seinni hluta framlengingar og var þar helst að þakka Petar Jokanovic, markverði ÍBV, sem lokaði markinu, líkt og hann gerði undir lok síðasta leiks.

Eyjamenn unnu sterkan 31:29-útisigur á FH og tryggðu sig þar með í úrslit þar sem liðið mun mæta annaðhvort Haukum eða Aftureldingu.

Markahæstur FH-inga var Ásbjörn Friðriksson með sjö mörk, næstur á eftir honum kom Jón Bjarni Ólafsson með fimm mörk. Kári Kristján Kristjánsson var markahæstur hjá ÍBV með níu mörk og Rúnar Kárason skoraði sjö mörk.

FH 29:31 ÍBV opna loka
70. mín. Rúnar Kárason (ÍBV) skoraði mark Rúnar klárar þetta, 37 sekúndur eftir og ÍBV þremur mörkum yfir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert