Frakklandsmeistarar París SG eru í góðum málum í einvígi sínu gegn þýska liðinu Kiel í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir 31:27-útisigur í Kiel í kvöld.
Parísarliðið var með 13:12-forskot í hálfleik og var staðan 20:20, þegar seinni hálfleikur var hálfnaður. Frakklandsmeistararnir voru hins vegar sterkari síðasta korterið og tryggðu sér sigur.
Dainis Kristopans, Elohim Prandi og Ferran Sala skoruðu sex mörk hver fyrir Parísarliðið. Norska stjarnan Sander Sagosen skoraði níu mörk fyrir Kiel og nafni hans Harald Reinkind gerði fimm.
Seinni leikurinn fer fram í París eftir viku.