Guðmundur sér ekki eftir neinu

Guðmundur Þ. Guðmundsson sér ekki eftir ákvörðuninni.
Guðmundur Þ. Guðmundsson sér ekki eftir ákvörðuninni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðmundur Þ. Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari karla í handbolta og núverandi þjálfari Fredericia í Danmörku, sér ekki eftir þeirri ákvörðun að taka ekki leikhlé í blálok leiks Fredericia og GOG í úrslitakeppninni í Danmörku.

GOG jafnaði í 32:32 þegar fimm sekúndur voru til leiksloka. Bjuggust þá flestir við að Guðmundur myndi taka leikhlé, til að reyna að stilla upp í sókn og skora sigurmarkið. Guðmundur kaus hins vegar að láta leikmenn sína halda áfram.

„Þeir voru að spila sjö á sex og markið þeirra var autt. Það hefði ekki verið gott að reyna að nýta það ekki. Það gekk næstum því,“ sagði Guðmundur við TV2 í leikslok.

„Þeir skoruðu þegar fimm sekúndur voru eftir og við höfðum ekki mikinn tíma til að bregðast við. Ég er viss um að þetta hafi verið það besta í stöðunni hjá okkur,“ bætti Guðmundur við.

Þrátt fyrir jöfnunarmarkið dugir Fredericia jafntefli við Skanderborg í lokaleik sínum í riðlinum til að fara í undanúrslit. Einar Þorsteinn Ólafsson leikur með Fredericia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert