ÍR tók úrvalsdeildarsætið af Selfossi

Hanna Karen Ólafsdóttir fellir gleðitár.
Hanna Karen Ólafsdóttir fellir gleðitár. Ljósmynd/Guðmundur Karl

ÍR tryggði sér sæti í úrvalsdeild kvenna í handbolta með 30:27-útisigri á Selfossi í oddaleik í umspilinu í kvöld.

Selfoss hafnaði í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar, á meðan ÍR endaði í öðru sæti 1. deildarinnar. ÍR-ingar taka því úrvalsdeildarsætið af Selfossi eftir sigur í sveiflukenndu einvígi liðanna, 3:2. ÍR vann tvo fyrstu leikina en Selfoss tvo þá næstu og hefði getað tryggt sér áframhaldandi sæti í deildinni með sigri á heimavelli í kvöld.

Karen Tinna Demian átti stórleik fyrir ÍR og skoraði 12 mörk. Vaka Líf Kristinsóttir, Hanna Karen Ólafsdóttir og Ásthildur Bertha Bjarkadóttir gerðu fjögur hver.

Arna Kristín Einarsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Selfoss og Katla María Magnúsdóttir gerði sjö.

ÍR-ingar fagna vel í leikslok.
ÍR-ingar fagna vel í leikslok. Ljósmynd/Guðmundur Karl
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert