Ísland byrjar á móti Serbíu

Ísland mætti Serbíu síðast á EM 2018.
Ísland mætti Serbíu síðast á EM 2018. Ljósmynd/Uros Hocevar

Drátturinn fyrir lokamót EM karla í handbolta, sem fram fer í Þýskalandi 10.-28. janúar á næsta ári, var framkvæmdur í Düsseldorf í dag. Í leiðinni var leikjum raðað niður og er ljóst að íslenska liðið byrjar gegn Serbíu 12. janúar, en C-riðilinn fer fram í München.

Þar á eftir leikur Ísland við Svartfjallaland 14. janúar og tveimur dögum síðar mætast Ísland og Ungverjaland. Tvö efstu lið hvers riðils fara áfram í milliriðla. Tvö efstu lið C-riðils mæta tveimur efstu liðum A- og B-riðils. Milliriðill úr riðli Íslands verður leikinn í Köln.

Leikjadagskrá Íslands á EM í Þýskalandi:
12. janúar: Ísland – Serbía
14. janúar: Ísland – Svartfjallaland
16. janúar: Ísland – Ungverjaland

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert