Misstu niður sex marka forskot án Gísla

Gísli Þorgeir Kristjánsson.
Gísli Þorgeir Kristjánsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Wisla Plock frá Póllandi og Þýskalandsmeistarar Magdeburgar skildu jöfn, 22:22, á heimavelli fyrrnefnda liðsins í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta í kvöld.

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir Magdeburg, en hann fór meiddur af velli snemma leiks. 

Magdeburg náði sex marka forskoti snemma í seinni hálfleik og var með 22:18-forskot þegar skammt var eftir. Pólska liðið skoraði hins vegar þrjú síðustu mörkin og fékk tækifæri til að skora sigurmarkið í lokin, en það gekk ekki.

Seinni leikurinn fer fram í Magdeburg eftir viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert