Bjarki Már Elísson og samherjar hans í ungverska liðinu Veszprém gerðu í kvöld 29:29-jafntefli á heimavelli gegn Kielce frá Póllandi í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta.
Íslenski hornamaðurinn komst ekki á blað hjá Veszprém í kvöld. Staðan í hálfleik var 16:13, Kielce í vil, en Veszprém var sterkari aðilinn í seinni hálfleik og nældi í jafntefli.
Haukur Þrastarson leikur með Kielce, en hann er frá vegna meiðsla. Seinni leikurinn fer fram í Póllandi eftir viku.